Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Um Fræðin minni

Um Fræðin minni

Fræðin minni

Marteinn Lúther tók saman Fræðin minni árið 1529 í þeim tilgangi að vera stutt og skýr samantekt á grundvallaratriðum kristinnar trúar, samkvæmt orði Guðs í Biblíunni. Fyrsta íslenska þýðingin var prentuð rúmum þremur áratugum síðar.

Fræðin minni hafa staðist tímans tönn. Öldum saman og víða um heim hafa þau þjónað sem grundvöllur kristinnar fræðslu í lúterskum kirkjum. Þau eru sameiginlegt játningarrit allra lúterskra kirkjudeilda, og sígild játning kristinnar trúar fyrir liðnar aldir, okkar eigin tíma og komandi kynslóðir.

Fræðin fjalla um höfuðgreinar kristinnar trúar: Boðorðin tíu, trúarjátninguna, bæn Drottins, skírn, skriftir og altarissakramentið. Að auki innihalda Fræðin bænir fyrir daglegt líf, og hússpjaldið með leiðbeiningum um skyldur kristinna manna.

Fræðin minni kallast einnig Enchiridion eða Handbók

Réttindi

Úr Fræðunum minni. Útgáfuár: 2026. Þýðandi: Sakarías Ingólfsson. Útgefandi: Játningarbundin evangelísk-lútersk kirkja (www.jelk.is).

Játningarrit kirkjunnar eiga að vera öllum frjáls til að nýta sér. Þýðingin er því gefin út með afnotaleyfinu “Creative Commons, Attribution, Share Alike”. Þar með er útprentun, ljósritun, hljóðritun, endurútgáfa o.s.frv. gefin frjáls, með því skilyrði að greint sé frá höfundarrétti, og endurútgefið verk hafi sama afnotaleyfi: CC BY-SA 4.0 Til að skoða afrit af afnotaleyfinu, farðu á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/