Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Boðorðin tíu

Boðorðin tíu

Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.

Fyrsta boðorð

Þú skalt ekki aðra guði hafa.

Hvað er það? Við eigum umfram allt að óttast Guð og elska
og honum að treysta.

Annað boðorð

Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við bölvum ekki í hans nafni,
sverjum, fjölkynngi fremjum,
ljúgum eða svíkjum,
heldur áköllum það í allri neyð,
biðjum, lofum og þökkum.

Þriðja boðorð

Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við fyrirlítum ekki prédikunina eða orð hans,
heldur höldum það heilagt,
heyrum það fúslega og lærum.

Fjórða boðorð

Heiðra skaltu föður þinn og móður.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við fyrirlítum ekki foreldra okkar og yfirboðara
eða reitum þá til reiði,
heldur berum virðingu fyrir þeim,
þjónum þeim og hlýðum,
elskum þá og virðum.

Fimmta boðorð

Þú skalt ekki morð fremja.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við meiðum ekki náunga okkar
eða vinnum honum nokkurt mein
á líkama hans,
heldur komum honum til hjálpar
í allri líkamlegri neyð.

Sjötta boðorð

Þú skalt ekki drýgja hór.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við lifum hreinlega og siðlega
í orðum og verkum
og sérhver hjón elski og virði hvort annað.

Sjöunda boðorð

Þú skalt ekki stela.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við tökum ekki
peninga eða eignir náunga okkar
eða drögum okkur það með svikinni vöru eða öðrum brögðum,
heldur hjálpum honum
að varðveita eignir sínar
og efla atvinnu sína.

Áttunda boðorð

Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við ljúgum ekki ranglega upp á náunga okkar,
svíkjum hann, baktölum eða ófrægjum,
heldur afsökum hann,
tölum vel um hann
og tökum öllu með skilningi.

Níunda boðorð

Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við sækjumst ekki eftir
arfi eða húsi náunga okkar með brögðum,
eða drögum okkur það undir yfirskini réttinda,
heldur styðjum og hjálpum honum að halda því.

Tíunda boðorð

Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað eða nokkuð það sem náungi þinn á.

Hvað er það? Við eigum að óttast og elska Guð,
svo að við drögum ekki, ógnum eða tælum,
maka, starfsfólk eða fénað frá náunga okkar,
eða snúum þeim gegn honum,
heldur hvetjum þau til hollustu við hann,
og að gera það sem þeim ber.

Hvað segir nú Guð um öll þessi boðorð?

Hann segir: „því að ég, Drottinn Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á börnunum, já í þriðja og fjórða lið, þeirra sem mig hata, en auðsýni miskunn þúsundum, þeirra sem elska mig og varðveita boðorð mín.“ (2 MÓS 20:5B–6)

Hvað er það? Guð hótar því, að hegna
öllum þeim, sem brjóta þessi boðorð.
Þess vegna eigum við að óttast reiði hans
og ekki breyta gegn þessum boðorðum.
En hann lofar náð og öllu góðu,
öllum þeim, sem halda þessi boðorð.
Þess vegna eigum við líka
hann að elska,
honum að treysta
og fúslega að breyta eftir boðorðum hans.