Trúin
Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.
Fyrsta grein: Um sköpunina
Ég trúi á Guð, Föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Hvað er það? Ég trúi
að Guð hafi skapað
mig og allar verur,
hafi gefið mér líkama og sál,
augu, eyru og alla limi,
skynsemi og öll skilningarvit
og haldi því enn við;
auk þess fatnað og skó,
mat og drykk,
hús og heimili,
maka og börn, akur, fénað og öll gæði;
sjái mér ríkulega og daglega
fyrir öllum þörfum og næringu
þessa líkama og lífs;
verndi mig gegn allri hættu,
gæti mín og varðveiti mig frá öllu illu.
Allt þetta gerir hann
af einskærri, föðurlegri og guðlegri
gæsku og miskunn,
án þess að ég eigi það skilið
eða verðskuldi það á nokkurn hátt.
En fyrir allt þetta ber mér skylda
til að þakka honum og vegsama hann,
þjóna honum og hlýða.
Það er vissulega satt.
Önnur grein: Um endurlausnina
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason Drottin vorn, sem getinn er af Heilögum Anda, fæddur af Maríu mey, píndur undir Pontíusi Pílatusi, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs Föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Hvað er það? Ég trúi, að Jesús Kristur,
sannur Guð, af Föðurnum fæddur frá eilífð,
og sömuleiðis sannur maður, fæddur af Maríu mey,
sé minn Drottinn,
sem hefur endurleyst, friðkeypt og frelsað mig,
glataðan og fyrirdæmdan mann,
frá öllum syndum,
frá dauðanum og frá valdi djöfulsins,
ekki með gulli eða silfri,
heldur með sínu heilaga, dýrmæta blóði
og með sinni saklausu þjáningu og dauða,
til þess að ég tilheyri honum
og lifi undir honum í ríki hans
og þjóni honum í eilífu réttlæti,
sakleysi og sælu,
eins og hann er upp risinn frá dauðum,
lifir og ríkir að eilífu.
Það er vissulega satt.
Þriðja grein: Um helgunina
Ég trúi á Heilagan Anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu holdsins og eilíft líf. Amen.
Hvað er það? Ég trúi, að ég geti ekki
af eigin skynsemi eða mætti
trúað á Jesú Krist, Drottin minn
eða komist til hans,
heldur hafi Heilagur Andi kallað mig með Fagnaðarerindinu,
upplýst mig með gjöfum sínum,
helgað mig og haldið mér í réttri trú
eins og hann kallar gjörvalla kristna kirkju á jörðu,
safnar henni saman, upplýsir hana og helgar,
og heldur henni við Jesú Krist
í hinni réttu, einu trú.
Í þessari kristnu kirkju fyrirgefur hann ríkulega á hverjum degi,
mér og öllum trúuðum allar syndir.
Á efsta degi mun hann uppvekja mig og alla dauða
og gefa mér og öllum sem trúa á Krist eilíft líf.
Það er vissulega satt.