Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Hússpjaldið

Hússpjaldið

Nokkur ritningarorð fyrir alls konar heilaga stöðu og stétt, svo að sérhver maður við eigin lestur minnist sjálfur á skyldur embættis síns og þjónustuverka.

Fyrir biskupa, presta og prédikara

Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari. Ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn. Hann á að vera maður, sem veitir góða forstöðu heimili sínu og heldur börnum sínum í hlýðni með allri siðprýði. (1 TÍM 3:2–4)

Hann á ekki að vera nýr í trúnni, til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn. (1 TÍM 3:6)

Hann á að vera maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð, sem samkvæmt er kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og hrekja þá, sem móti mæla. (TÍT 1:9)

Skyldur áheyrendanna við kennimenn þeirra

Þannig hefur Drottinn einnig fyrirskipað að þeir, sem prédika fagnaðarerindið, skuli lifa af fagnaðarerindinu. (1 KOR 9:14)

En sá, sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem uppfræðir, hlutdeild með sér í öllum gæðum. Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. (GAL 6:6-7)

Öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kennslu. Því að ritningin segir: "Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir" og "verður er verkamaðurinn launa sinna." (1 TÍM 5:17–18)

Hlýðið leiðtogum yðar og verið þeim eftirlátir. Þeir vaka yfir sálum yðar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlátir til þess að þeir geti gjört það með gleði, ekki andvarpandi. Það væri yður til ógagns. (HEB 13:17)

Um veraldlega valdstjórn

Sérhver maður hlýði þeim yfirvöldum, sem hann er undirgefinn. Því ekki er neitt yfirvald til nema frá Guði, og þau sem til eru, þau eru skipuð af Guði. Sá sem veitir yfirvöldunum mótstöðu, hann veitir Guðs tilskipun mótstöðu, og þeir sem veita mótstöðu munu fá dóm sinn. (RÓM 13:1–2) Yfirvöldin bera ekki sverðið ófyrirsynju, þau eru Guðs þjónn, hegnari til refsingar þeim er aðhefst hið illa. (RÓM 13:4)

Skyldur þegna við yfirvöld sín

Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er. (MATT 22:21)

Sérhver maður hlýði þeim yfirvöldum, sem hann er undirgefinn… (RÓM 13:1) Þess vegna er nauðsynlegt að hlýðnast, ekki einungis vegna hegningarinnar, heldur og vegna samviskunnar. Einmitt þess vegna gjaldið þér og skatta, því að valdsmennirnir eru Guðs þjónar, sem annast þetta. Gjaldið öllum það sem skylt er: Þeim skatt, sem skattur ber, þeim toll, sem tollur ber, þeim ótta, sem ótti ber, þeim virðing, sem virðing ber. (RÓM 13:5–7)

Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum, fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði. (1 TÍM 2:1–2)

Minn þá á að vera undirgefnir höfðingjum og yfirvöldum… (TÍT 3:1)

Verið Drottins vegna undirgefnir allri mannlegri skipan, bæði keisara, hinum æðsta, og landshöfðingjum, sem hann sendir til að refsa illgjörðamönnum og þeim til lofs er breyta vel. (1 PÉT 2:13–14)

Fyrir eiginmenn

Og þér eiginmenn, búið með skynsemi saman við konur yðar sem veikari ker og veitið þeim virðingu, því að þær munu erfa með yður náðina og lífið. Þá hindrast bænir yðar ekki. (1 PÉT 3:7)

Þér menn, elskið eiginkonur yðar og verið ekki beiskir við þær. (KÓL 3:19)

Fyrir eiginkonur

Eins skuluð þér, eiginkonur, vera undirgefnar eiginmönnum yðar eins og það væri Drottinn, eins og Sara hlýddi Abraham og kallaði hann herra. (EFES 5:22 og 1 PÉT 3:1 tekið saman)

Og börn hennar eruð þér orðnar, er þér hegðið yður vel og látið ekkert skelfa yður. (1 PÉT 3:6)

Fyrir foreldra

Og þér feður, reitið ekki börn yðar til reiði, svo að þau verði ekki ístöðulaus, heldur alið þau upp með aga og umvöndun Drottins. (EFES 6:4 og KÓL 3:21 tekið saman)

Fyrir börn

Þér börn, hlýðið foreldrum yðar vegna Drottins, því að það er rétt. "Heiðra föður þinn og móður," — það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti: "til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni." (EFES 6:1-3)

Fyrir starfs- og verkafólk

Þér þrælar, hlýðið yðar jarðnesku herrum með lotningu og ótta, í einlægni hjartans, eins og það væri Kristur. Ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur eins og þjónar Krists, er gjöra vilja Guðs af heilum huga. Veitið þjónustu yðar af fúsu geði, eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn. Þér vitið og sjálfir, að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða, sem hann gjörir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður. (EFES 6:5–8)

Fyrir húsfeður, húsmæður og yfirmenn

Og þér, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þér vitið, að þeir eiga í himnunum sama Drottin og þér og hjá honum er ekkert manngreinarálit. (EFES 6:9)

Fyrir æskulýð almennt

Og þér, yngri menn, verið öldungunum undirgefnir og skrýðist allir lítillætinu hver gagnvart öðrum, því að „Guð stendur gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.“ Auðmýkið yður því undir Guðs voldugu hönd, til þess að hann á sínum tíma upphefji yður. (1 PÉT 5:5–6)

Fyrir ekkjur

Sú sem er í raun og veru ekkja og er orðin munaðarlaus, festir von sína á Guði og er stöðug í ákalli og bænum nótt og dag. En hin bílífa1 er dauð, þó að hún lifi. (1 TÍM 5:5–6)

Fyrir söfnuðinn

Hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (RÓM 13:9)

[Ég áminni] um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum. (1 TÍM 2:1)

Ef sérhver lærir sína grein,
þá sækja húsið engin mein.